rosasaeta











{ágúst 18, 2008}   heilluð?

Hafiði unnið í veiðihúsi? En sú fáránlega mikla vinna (dæmi; vakna kl 0600 og vinn til kannski 1400 eða 1600 fer svo og legg mig eða á stuttu dögunum fer ég út að hjóla eða fer í sturtu og lakka neglur, er svo komin í hús aftur kl 2100 og vinn til kannski 0200 og svona heldur maður áfram í 6-7 daga og svo heim til mín og fyrsti frídagurinn fer í það að sofa, svo reynir maður að hitta fólk eða útrétta og svo allt í einu þarf ég að fara aftur í vinnuna) En þetta er samt áhugavert, áhugavert fólk að gera áhugaverða hluti (minnst af því að veiða). Ef ég bara gæti og mætti segja frá því sem ég verð vitni að þá gæti ég eflaust orðið rík en svona er ég traust og trú og mun því ekki segja neitt… en sú skemmtun samt. En mig langaði samt að segja ykkur frá því sem heillar mig í dag

Karlmenn með falleg augu (þeir eru útum allt), svefn, rófur (þessar ætu) og gulrætur, humarhalar í hvítlaukssmjöri, kynlíf (sakna þess), skemmtilegar samræður, sönn vinátta (sakna stelpnanna minna), ferðalög, mamma mia bíómyndin (man ekki eftir að hafa liðið jafn vel eftir neina bíómynd), ég, (jebb ég heilla mig)

btw, hef ekki hitt þennan verðandi eiginmann með nýrri vinnu, þennan sem fyllir mig viðbjóði við fyrstu kynni… spádómar rætast ALLTAF!

ok skrifa aftur eftir einhverja mánuði… kannski fyrr ;)



{janúar 29, 2008}   loksins skrifar helv… tíkin

fólk var eitthvað að tala um hversu lítið ég hef skrifað upp á síðkastið… eða eitthvað lengur.

ég hef svosem ekkert að segja, mér að vísu hundleiðist, það vantar eitthvað- einhvern til að draga mig út á kvöldin þar sem ég er bara heima, því ég hef engan áhuga á að hanga ein á kaffihúsum. :(

eins og allir vita þá gekk enn einu sinni ekki upp með skólann en hei ég kann ensku (sem felldi mig síðast) en ekki innihaldið, þetta kom mér svo sem ekkert á óvart núna eftir prófið, ég fékk erfiða pistla (af þeim fimm sem ég dróg upp fékk ég þrjá sem ég var ekki búin að læra mikið undir og þá fellur maður, þar sem ekki er hægt að ráða hvaða pistla maður fær) og svo auðvitað allt hitt sem heltók huga og sál frá því í sumarlok og þegar ég átti að vera að læra sat ég og las sömu setningu aftur og aftur tímum saman… en svona er þetta bara stundum.

um daginn var spáð fyrir mér, tek því svona með einhverjum fyrirvara, nema hvað… ég átti að ná prófinu ef ég læri vel undir, mér mun ganga vel í nýju vinnunni og síðar ráða þó nokkru miklu þar sem ég á auðvelt með að fá fólk til að hlusta, taka þátt í og gera það sem ég tel best, mun þó ekki vera forstjóri þar sem ég hef ekki áhuga eða vil ekki standa í yfirmannabuisness (skildist mér á henni) ég mun hitta verðandi eiginmann með nýrri vinnu og við fyrstu kynni á mér ekki eftir að líka við hann eða eins og konan sagði “þegar þú hittir hann þá færðu svona ojjj (ugghh) tilfinningu”og hrissti hausinn og gretti sig (án gríns) en hún gat ekki sagt fyrir hvort hann væri íslendingur eða ekki.  Áhugavert!!!

ok búið



{september 24, 2007}   Pheww

Jæja ég er komin aftur… svona eiginlega, en margt hefur verið í gangi sem ég mun ekki útlista frekar hér.  En lífið er betra núna og við lítum björtum augum á framtíðina, mæli með að aðrir geri það einnig.  Borðandi saltstangir og gulrætur, (ekki spyrja afhverju) og bíð spennt  eftir að usa-ið og evrópsk lönd ráðist inn í íran til að eignast olíu og hlakka heilmikið til í að heyra rökstuðning þessara landa fyrir innrás, neibb kjarnorkutautið er bara ekki nógu góð ástæða… nei bjartsýn, bjartsýn! Fallegir hlutir… , … , … ehh kannski næst, þar til þá knús og kossar

rósin



{júlí 21, 2007}   Ha? Langt síðan???

Hef ekkert að segja en segi þó að ég er enn á lífi, nóg að gera hjá mér og svo sjáum við til hvort það breytist í næstu viku…

þar til (eitthvað áhugavert gerist sem mér finnst að þið megið njóta með mér) næst

kossar og knús rósin



{júní 3, 2007}   Þessir danir…

ok ég veit að þið sem lesið þetta hafið lítinn sem engan áhuga á fótbolta, en var einhver sem sá leikinn á milli svía og dana í gær?  Eða hafið séð íþróttafréttir eða eitthvað svoleiðis… nema hvað ef allir eru ha? Hvað ertu að tala um? þá skal ég segja, útaf því að mér finnst þetta svolítið fyndið, sorglegt og já bara gallað eitthvað, en sko svíar og danir sparka í bolta, svíar búnir að sparka 3 sinnum boltanum í markið og mikil gleði, svo fara danir að sparka líka í markið svona þegar leikurinn er að renna sitt skeið og á undralegann hátt sparka 3 líka, vei jafntefli, danirnir að missa sig af gleði, dansi dansi gleði gleði og svo vill svo til að einn danski sparkarinn lemur eitthvað í sænska sparkarann og fær rauða spjaldið, ææ ekki gott, en eitthvað fór það í skapið á einum danska gláparanum og hann hleypur inn á völlinn og slær til dómarans, (dómaranum þó bjargað frá verri meiðslum af dönsku spörkurunum) en dómsi kallinn ekki kátur og er leikurinn stoppaður (alveg mínúta í leikslok) jæja,  danirnir misstu öll stigin sem þeir hefðu getað unnið og ojj, sem sagt þrátt fyrir jafntefli þá var leikurinn dæmdur af dönunum útaf einhverjum fullum fúlum dana sem ákvað að fara í fýlu út í dómarann… já þessi dani er eflaust mest hataði daninn þessa dagana ef danirnir detta úr úrslitum útaf því að gaurinn flippaði…

áhugavert ha?  kannski ekki en þar sem ég þekki svo mikið að gervidönum sem horfa ekki á fótbolta svona að jafnaði varð ég bara að tala um þessa dani

rósin



jæja ekki gekk nú vel að setja inn myndina hérna um daginn, en hei sumt er mér bara ekki ætlað að kunna…

talandi um það að kunna ekki allt, ég náði ekki að útskrifast úr skólanum þar sem ég kann ekki ensku, a.m.k. ekki nógu vel, svolítið fyndið að orðin sem ég er að bögglast með eru stóru orðin, þessi flóknu sem jú útskýra svo sem hvað er í gangi, en samt er okkur sagt (í skólanum) að tala við ferðamenn eins og smábörn og notabene nota orð sem allir skilja… og skal ég vel viðurkenna að ef ég hefði ekki farið í jarðfræði í þessum skóla, þá myndi ég aldrei vita hvað leiðsögumaður sem talaði um innskot, berghlaup eða jöklabúskap ætti við, en ég náði jarðfræðinni og ég öllum öðrum prófum, þannig að ekki er ég algjör asni, bara smá.

En ég fór í hringferð með skólanum og það var nú ansi gaman og mjög lærdómsríkt, núna ætla ég að skemmta mér þegar ég fer í sveitina að útskýra allt fyrir Klöru og Lísbet (og Sylvíu og Viktoríu sem munu þó eflaust ekkert skilja) en planið er að leggja af stað 11 júní og vera komin aftur heim fyrir afmælið hennar Gunnsu

Svo gæti ég nú farið að tala um skemmtileg umræðuefni eins og portúgala sem vinna við Kárahnjúkavirkjun og eiga eitthvað bágt, en mér er eiginlega nokk sama um þá umræðu, þar sem þessi virkjun mætti hverfa niður til…  með eða án starfsfólks… bíddu sagði ég þetta upphátt, okei fólkið á ekki að fara með!  Æi þið vitið hvernig þetta er það er alltaf farið helvíti illa með útlendinga sem koma hingað til íslands, bara eitt lítið dæmi, ég sendi vin minn sem er útlendingur og talar útlensku út í sjoppu að kaupa sígó, kostaði hann 600 kall, í dag fór ég í sömu sjoppu og borgaði 580, 20 krónum minna eins og ég hef alltaf gert… skiptir kannski ekki öllu en samt, svolítið spes… ég trúi ekki að ég sé að eyða svona miklu í sígarettupakka… ég ætla að hætta að reykja!

Rósin



Jæja, it’s official… ég er aumrósa (vill ekki vera ingi) samt sem áður er ég líka meistrósa (vil heldur ekki vera ari), búin að kjósa, var óviss alveg þar til mín gekk inn í klefann, en kaus svo kallinn sem lét mig hlægja þegar ég var lítil… ég meina þar sem allir ljúga hvort eð er og lofa upp í ermarnar á sér, þá fannst mér þetta vera jafn góð ástæða og einhver önnur til að velja flokk! Jæja, er einnig búin að vera menningarleg í rokinu, sá hana risessu vakna og fara í sturtu og leita svo að pabba sínum sem er í heldur betur vondu skapi og hefur skilið höfuðborgina eftir í rúst… já til að mynda er búið að skera strætisvagn nánast í sundur, en hnífurinn situr þar fastur, gaffall er í einum bílnum, risablómakari hefur verið hent framan á einn bílinn og situr þar fast og margt meira skemmtilegt, svo lekur foss niður af einu húsinu í bankastræti (búið til úr svona pallíettum) og meira skemmtilegt að sjá þegar maður fer einn í göngutúr. Nóg að gera þessa dagana, listahátíð, kosningar og júró… ætla sko að horfa á í kvöld, sama þótt að rauðhærða hetjan sé ekki með, hann gaur sem kynnir (hvað í helv… heitir hann aftur) er með ólíkindum fyndinn og gerir sjóið svo hrikalega skemmtilegt… áfram hann!

Í kvöld ætla ég að gleyma raunum mínum og fá mér bjór og snilldarmat hjá henni Gunnsu, en hún ákvað að bjóða nokkrum útvöldum í mat og júrósjó, svo á morgunn hefst sorgin aftur og ég mæti eldhress heim til Eddu (já hera mín, eddu þinnar) og hún ætlar að útskýra jarðfræði fyrir mér og Sonju þar sem við báðar féllum á því prófi…

Í lokinn þá óska ég eftir upplýsingum um háls, nef og eyrna sérfræðing, og kannski fullt af peningum til að koma mér til hans, en ég er öllrósa (vill ekki vera guð) og þarf lagfæringu.

Annars þakka ég öllum sem sendu mér afmæliskveðju og já er aðeins 27 ára (einu sinni einu sinni enn…)

Rósin

img_0535.jpg



{apríl 19, 2007}   Gleðilegt sumar

dagurinn í dag er búin að vera yndislegur, fór í rútuferð með Klöru og stelpunum að Hellisheiðavirkjun, að Langahelli í Bláfjöllum (þó að hellirinn sjálfur hafi ekki verið skoðaður, soldið erfitt með 1 og 2 ára stelpur)  en við stoppuðum hjá Litlu Kaffistofunni og þar komu fullt af mótorhjólum, ég taldi milljón en Sylvía sagði fimmtán (voru um 30-40) en þar fékk ég… tja með versta kaffi sem ég hef smakkað, en Klara einhverja hluta vegna fékk það ókeypis… kannski vegna þess að í dag var sumardagurinn fyrsti og allt var svo ódýrt og ókeypis, elska svona daga!

Í gær var svo að vísu sorgardagur hér heima, vegna brunans á austurstræti og lækjargötu og ég tók ekki eftir neinu, fann brunalykt, tékkaði á íbúðinni minni en hér var allt í fínu svo ég pældi ekkert meira svo sem í þessu, fyrr en ég fór í skólann og átti í mestu erfiðum með að komast úr hverfinu… þegar ég sagði svo að eitthvað væri að brenna í miðbænum við nokkrar konur í bekknum þá fékk ég upplýsingarnar… en vegna þess að fólk er spes… svo ekki sé minna sagt þá langar mig að skrifa sms sem ég fékk sent í gærkvöldi: “Hljómsveitin Sviðin Jörð leikur fyrir dansi á Pravda í kvöld, logandi heitur Kebab og orkudrykkurinn BURN fylgir hverjum miða! Eldheit stemmning! Athugið að staðurinn er EKKI reyklaus!”  (Svo getum við bætt við að Gufubað Lauga sé opið) jebbs fólk getur verið með frekar andstyggilegan  húmor.  En er þetta ekki bara týpískt íslenskt, með kaldhæðina til taks ef slæmir hlutir gerast.

En er á leiðinni á gaybarinn með henni Agnesi í kaffisopa… vonandi góðann

Rósin



{apríl 13, 2007}   þegar ég var yngri

Hér sit ég heima og hlusta á 30 ára gamla upptöku sem búið er að færa yfir á cd disk, af fjölskyldunni á Óðinsgötu 17 a, þar sem við erum á hringferð um landið á leiðinni að hitta Steinar bróðir sem var í sveitinni, ég rúmlega þriggja ára, hávær en þegi víst við og við, aldrei þessu vant; eins og pabbi orðaði það svo skemmtilega!  Ég fereee líka til að bakka! söngla ég tugi sinnum (eitthvað að misskilja orðið baggi virðist vera) Stoppaðu til að sjá laxunganna hrópar Steinar á há céinu, á meðan ég söngla og Klara litla talar ekkert en gefur frá sér hin og þessi hljóð (alveg eins og Viktoría er að gera í dag)  og pabbi og mamma ræða hitt og þetta og einnig baular pabbi þarna eitthvað meðan tækið rúllar… já stundum er gaman að svona gömlum hlutum…

annars fór ég loks til læknis í dag og er þar með komin á penisilin dóp! Vonandi lagast ennisholurnar og verkjatöflur komast í pásuupptöku af minni hálfu

kosningar í vor… og enn sú skemmtun að hlusta á þessa blessuðu stjórnmálamenn núverandi og verðandi ljúga upp í opið geðið á okkur hlustendum… nenni minna að hlusta og nú eru fréttir á mute!

þar til næst, ætla ég að leggja mig, reyna að komast inn á bankasíðuna mína og losna við hausverk, að eilífu… amen!



{apríl 7, 2007}   sprengisýn

stundum þykir mér svo gaman að lesa vitleysu og illa skrifandi mál…

dæmi: afskablega!, sprengisýn a.k.a. flugeldasýning, (og útaf því að ég byrjaði að skrifa um það þá man ég ekki neitt… djö) endilega sendið mér skemmtilegar setningar

sylvia nótt í suður amerískri borg á Indlandi að taka upp video, skv. mbl.is!

breskir sjóliðar sem voru í einangrun!!! omægod, handtekna fólkið fékk ekki að vera saman í klefa, ömurlegt, brot á stjórnarskrá… stríð stríð stríð (stundum má nú alveg einfalda hlutina, fyrir það er ég nú þekkt)

Svo er það málið með þetta blessaða kvef mitt, sem stöðvar mig í að hitta fólk sem á börn en einn góðan veðurdag losna ég við það, þetta tekur smá á, maður er alltaf með kvef og eflaust alltaf að smita fólk í kringum mann  og hnerra! ojj ojj ojj, icelandair :)

ætla að kíkja á pabba og fjölskyldu á eftir í te og meðí, pabbi með einhverja pest þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af smita þau af hnerrinu

Já og góðar fréttir, ég er búin að borða morgunmat á hverjum morgni í heilan mánuð (-2 daga), kannski ekki svo merkilegt fyrir hinn almenna borgara en fyrir mig er þetta mest merkilegt þar sem ég hef ekki borðað morgunmat nánast alla mína fullorðinsævi, já klapp á bakið

komin tími á vítamíndópið mitt, þar til næst rósin kveður



o.s.frv.